Aðalfundur Kvists 29. maí 2018
Fundarstaður og tímasetning: Valhöll, kl. 19.00 þriðjudaginn 29. maí
Skv. 7. grein laga Kvists skal dagskrá aðalfundar vera:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Skýrsla gjaldkera, endurskoðaðir reikningar lagðir fram og afgreiddir.
3. Ákveðið árgjald næsta árs.
4. Lagabreytingar, sé þeirra getið í fundarboði.
5. Kosning varagildismeistara.
6. Kosning annarra stjórnarmanna.
7. Kosning tveggja skoðunarmanna ársreikninga.
8. Önnur mál.
Umsjón og skipulagning er í höndum stjórnar: Agnes R., Guðrún G., Gylfi Á., Úlfar B.,Valgerður J.
Eftirtaldir stjórnarmeðlimir gengu úr stjórn nú: Agnes, Gylfi og Valgerður. Í þeirra stað voru kosin: Katrín B., Björgúlfur og Halla G. Skoðunarmenn reikninga verða áfram Heiða og Ólafur. Guðrún og Úlfar eru áfram í stjórn. Sjá nánari verkaskiptingu í yfirlitinu um stjórnir Kvists.