Fundur hjá Kvisti 25. apríl
Apr 3, 2017
Fundartími og staður: Kjarnaskógi við strandblakvöll kl. 19.00
Framkvæmdanefnd: Katrín, Magna, Margrét, Heiða
Veitinganefnd: Eyrún, Friðjón, Guðný St., Ingi Kr.
Fundurinn verður úti og biðjum við fólk um að vera klætt með tilliti til veðurs og útiveru.
Gott er að hafa teppi meðferðis.
Eins biðjum við þátttakendur að hafa með sér drykkjarílát (glas eða bolla).
Það verða ekki langar gönguferðir og aðal viðveran verður í syðra grillhúsinu þar sem við munum næra okkur.