Haustferð Kvists 2017
Jul 24, 2017
Haustferð Kvists var laugardaginn 16. september. Farið var í austurátt. Fyrst var áð í Mývatnssveit síðan var haldið lengra austur með kaffihlé við afleggjarann niður í Vopnafjörð. Í Fellabæ tókum við Einar Haraldsson uppí rútuna og leiðsagði hann okkur um svæðið. Snæddum við hádegismat í Klausturkaffi, skoðuðum óbyggðasetrið, síðan Hallormsstaðaskóg áður en við kvöddum Einar. Kvöldkaffi fengum við í Fjallakaffi. Var þetta hin ágætasta ferð sem fimmtán Kvistir og einn gestur fóru í.