Landsgildisþing 13. til 14. maí 2023 á Akureyri
St Georgsgildið Kvistur Akureyri, tók að sér að halda Landsgildisþing og Gildishátíð St Georgsgildanna og Skátagildanna á Íslandi helgina 13. til 14. mai 2023. Þingið og Gildishátíðin voru haldin í húsnæði Rauða Krossins, Viðjulundi 2 Akureyri. Meðfylgjandi eru myndir teknar á Landsgildisþinginu, Gildishátíðinni og á siglingu með HÚNA 2 um Eyjafjörð. Einnig eru myndir frá sameiginlegum morgunverði félaga í Gildunum að Hömrum að morgni sunnudagsins. Landsgildisþing St. Georgsgilda og skátagilda á Íslandi 13. - 14. maí 2023. Þingstaður: Salur Rauða krossins Viðjulundi 2 Akureyri
Dagskrá 13. maí:
Kl. 9 Skráning og afhending þinggagna
Kl. 9:30 Þingsetning og dagskrá samkvæmt samþykktum Landsgildisins:
1. Setning landsgildisþings – Heiðranir.
2. Kosning tveggja fundarstjóra og tveggja fundarritara.
3. Lögð fram skýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar til umræðu og afgreiðslu.
4. Starfsskýrslur gilda.
5. Breytingar samþykkta.
6. Uppstillingarnefnd leggur fram tillögur sínar.
7. Kosning landsgildismeistara.
8. Kosning varalandsgildismeistara, ritara, gjaldkera og erlends bréfritara.
9. Kosning eins manns í varastjórn.
10. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
11. Ákveðið árgjald til Skátagildanna á Íslandi.
12. Önnur mál.
Kl. 14 Þinglok
Kl. 14:30 Sigling - söguferð með Húna EA - 740
Kl. 16 Hlé
Kl. 19-23 Varðeldur – hátíðarkvöldverður, skemmtun á vegum gildanna í sal Rauða krossins
Dagskrá 14. maí:
Kl. 10 Morgunverður að Hömrum
Kl. 12 Dagskrá lokið