Óvissufundur Kvists 26. apríl
Apr 4, 2016
Óvissufundur eða -ferð Kvists þriðjudaginn 26. apríl 2016.
Þá er komið að hinum árvissa óvissufundi okkar. Biðjum ykkur að mæta stundvíslega við Lundarskóla kl. 19.00 n.k. Best að safnast saman við suðurdyr. Munum ekki leita langt yfir skammt að þessu sinni, en biðjum ykkur að mæta hrein og strokin með bros á vör og sól í hjarta. Göngur verða hvorki langar né strangar og við allra hæfi. Að lokinni dagskrá munum við safnast saman í Hyrnunni við Þórunnarstræti og þar mun bíða okkar eitthvert ljúfmeti.
Framkvæmdanefnd:Hrefna, Halla Á., Magna og Eyrún
Veitinganefnd: Þorsteinn, Ingi, Jónas og Björgúlfur