Sumarferð Kvists í júlí
Akureyri- Þorgeirsskirkja- Ársel- Hveravellir- Laxárdalur/ Þverá- Dalakofinn- Akureyri.
Heldur þungbúið veður en þurrt í upphafi, kalt 5-7 gráður. Rigning eða úði af og til ein demba annars alveg þokkalegt og sá aðeins til sólar þegar við komum út úr Laxaárdalnum á Prestahæð, mjög fallegt að sjá þar yfir til norðurs, sama sagan þegar sást til Eyjafjarðar á heimleiðinni.
Keyrt sem leið lá austur, komið hafði í ljós að jarðarför var á dagskrá í Þorgeirskirkju og var hún rétt að byrja þegar við ætluðum að renna í hlað. Því var haldið aðeins til baka í Kinnina og keyrt austur í Ársel, sumarhús “ hinna gogganna”. Þar borðuðum við nesti og dvöldum um stund. Ágætis hús en alveg við frostmark þegar inn var komið. Rigning var meðan við stoppuðum þar, svo ekki var nú vænlegt að matast utandyra, sem annars hefði verið mjög skemmtilegt því umhverfið er fagurt. Þaðan var svo haldið áfram austur og áætlað að skoða grænmeti á Hveravöllum. Kom þá í ljós að þar var verslunin aðeins opin virka daga svo ekkert varð úr því. Þá var á skyndifundi ákveðið að keyra til Húsavíkur og frjáls tími þar sem flestir nýttu til að ganga um eða skoða Geimfarasafnið. Aðalhluti ferðarinnar var að Laxárdalurinn skyldi nú skoðaður með leiðsögn Jóns Benediktssonar á Auðnum fremsta bæjar í byggð vestan megin. Við ókum inn dalinn, yfir brúna austur yfir og fram undir fremsta bæ, fengum góðar og fróðlegar lýsingar, síðan lá leiðin að Þverá þar skoðuðum við kirkjuna og gamla bæinn með leiðsögn bóndans þar. Áskell Jónasson heitir hann, manna fróðastur um allt þar á bæ og víðar. Þá var komið að kvöldverði í Dalakofanum í Reykjadal. Dásemdar matur snæddur þar, sumir fengu lambasteik aðrir bleikju. Í eftirrétt var svo eplakaka með rjóma og kaffi. Að málsverði loknum var haldið heimleiðis með smá stoppi á Fosshóli. Var þetta hin ánægjulegasta sumarferð tuttugu og tveggja Kvista og þökkum við félaga Jónasi aksturinn. (Eyrún/Úlfar)